Veda Toppur - Svartur
Þetta er ekki bara einhver svartur bolur, hann er rykktur í annari hliðinni og ó-symmetrískur að framan. jú hann virkar einfaldur en hann mun elevatea öll look (afsakið ensku sletturnar en eina þýðingin sem ég fann á þessu orði er lyfta og það bara passar ekki.. það væri kannski hægt að segja færa múnderinguna upp á annað stig, sem jújú er alveg góð setning... jú ok það er skemmtilegra)
Þessi bolur mun færa múnderinguna upp á annað stig! fólk mun þurfa stiga til að spjalla við þig. ;)
Líka til í rauðu HÉR
50% Cotton, 43% Polyester, 7% Elastane
GOTH AÐ VITA:
Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.
Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið misjafnt með póstinum eða Dropp.
Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík.
Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.
Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum.