Skilmálar

Neðangreindir skilmálar gilda fyrir vefverslun Rokk & Rómantík . Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.goth.is

Rokk & Rómantík áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Hægt er að skila eða skipta vörum innan 14.daga gegn framvísun greiðslukvittunar í aðra vöru eða inneign. Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga frá móttöku vörunnar. Skyldir þú vilja skila eða skipta vörunni sem þú verslaðir hjá okkur þá er það ekkert mál. Endursending vöru er á ábyrð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða ranga/gallaða vöru. Allar endurgreiðslur verða að fara í gegnum vefverslun.

Þegar þú verslar á www.goth.is getur þú valið á milli þess að sækja í verslun eða fengið pöntunina þína senda með Íslandspósti/Dropp 

Við sendum frítt með DROPP eða með póstinum á næsta pósthús, pakkaport eða póstbox þegar verslað er fyrir 12.000 kr. eða meira.

Allar pantanir sem koma fyrir 12:00 virka daga fara í póst/Dropp samdægurs

Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Skilamálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

 

 

Ást & Friður.