Empyrean Tear Eyrnalokkar - Crystal
Alchemy

Empyrean Tear Eyrnalokkar - Crystal

Venjulegt verð 3.990 kr 0 kr

Ertu norn á leiðinni á ströndina?
Hérna eru nefnilega töff eyrnalokkar með kristal sem glitrar í regnbogalitum og toppurinn lítur smá út eins og kuðungur 🐚

Ef þú ert minna regnbogakristals-megin og meira ,,sál mín er svört og allt sem ég á skal endurspegla það"-megin í lífinu þá má ég til með að vísa þér HINGAÐ

Hannað og handgert í Englandi - hágæða enskt pjátur (92% tin, 8% kopar og aðrir snefilmálmar)

GOTH AÐ VITA:

Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.

Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið  misjafnt  með póstinum eða Dropp.

Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík. 

Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.

Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum. 

 

 


Deildu þessari vöru