Vinnie The Bunny Hettupeysa
Ætlarðu að fara að spila Chubby Bunny? 🐰
Bunny Bunny kannski? 🐇🐇
Finnst þér báðir leikir drepleiðinlegir og myndir kalla hátt og snjallt: ,,BUNNY!" ef þér væri sagt að þeir væru á dagskrá? 🙅
Hér er peysan til að gera þetta allt í og margt margt fleira.
Gætir farið á hryllingsmynd í bíó og notað eyrun til að skýla augunum þegar myndin verður of scary 🙈
Gætir farið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og flexað á kanínurnar hvað þú ert með miklu stærri eyru en þær 👯
100% POLYESTER
GOTH AÐ VITA:
Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.
Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið misjafnt með póstinum eða Dropp.
Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík.
Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.
Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum.