Dark Vixen Toppur
Dark Vixen Toppur
Dark Vixen Toppur
Dark Vixen Toppur
Banned

Dark Vixen Toppur

Venjulegt verð 6.990 kr 0 kr

Vó, bíddu, hvernig er eiginlega hægt að koma svona mikið af edgy díteilum á einn lítinn topp??? 🫨
Í grunninn er þetta sem sagt ermalaus crop toppur úr teygjanlegu svörtu bómullarefni,
svo hefst upptalningin:

  1. Það er saumur beint undir bobbunum sem gerir mjög mikið fyrir línurnar 🔥
  2. Það er v-hálsmál sem er fyllt ca. hálfa leið upp með fishnet efni 🖤
  3. Það eru tvær (2) keðjur og þrjár (3) lykkjur til að krækja þeim í undir bobbunum (líka hægt að taka keðjurnar af ef þú vilt aðeins minna dangly extraness, eða nota þær einhversstaðar annarsstaðar) 🔥
  4. Á öxlunum er böns af litlum götum sem eru með kósum 🖤
    Veistu ekki hvað kósi er? Nei, ég skil það vel, ég var bara að læra þetta orð sjálf, það er s.s. íslenska orðið yfir eyelet, hér er skilgreiningin eins og hún birtist á Wikipedia:
    • Kósi (kós eða kóssi) er hlíf, oftast úr málmi en líka úr plasti eða öðru efni, til varnar sliti innan í gati eða lykkju sem band leikur í. Á reimuðum skóm eru tveir ristarflipar og á hvorum tveggja þeirra er oftast röð kósa sem skóþvengir eru þræddir í gegnum. Kósar eru líka algengir á beislum, beltum og seglum.
      Kósar eru einnig notaðir sem skraut á fatnaði, án nokkurs sérstaks tilgangs.
      (hey, eins og á toppnum 😀)

       

      Í hestamennsku er talað um að ríða kósa af og merkir að ríða í einum fleng eða flengríða, það er greitt. 
      (Þetta er beint upp af Wiki, ég lofa 🏇)

       

100% COTTON KNIT

GOTH AÐ VITA:

Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.

Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið  misjafnt  með póstinum eða Dropp.

Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík. 

Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.

Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum. 

 

 


Deildu þessari vöru