Brody Buxur
Þessar buxur eru köflóttar..
Orðið köflótt virðist ekki gamalt í íslenska málinu. Elsta dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá 1890 og er verið að tala um köflótt rúmteppi. Þá er átt við að teppið sé þannig ofið að mynstrið myndi kafla. Sú merking er mjög algeng þegar átt er við fataefni (til dæmis köflótt pils, köflótt skyrta eða ákkúrat þessar köflóttu buxur), áklæði, gluggatjaldaefni, borðdúka og fleira þess háttar.
Efnið getur verið stórköflótt eða smáköflótt og allt þar á milli. Við myndum segja að þetta væri milliköflótt. Semsagt ekki stórköflótt né smáköflótt.
Ertu ennþá að lesa? spes.
GOTH AÐ VITA:
Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.
Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið misjafnt með póstinum eða Dropp.
Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík.
Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.
Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum.