Howl Eyrnalokkur
Howl Eyrnalokkur
Alchemy

Howl Eyrnalokkur

Venjulegt verð 3.990 kr 0 kr

Stakur eyrnalokkur sem er samt eiginlega tveir eyrnalokkar en samt bara fyrir eitt eyra en þá verður það eyra að vera með a.m.k. tveimur götum (í viðbót við gatið á eyranu sem leiðir inn í hausinn á þér ofc)

Á öðrum endanum er úlfur (kannski varúlfur, kannski ekki, fer eftir hvaða varúlfa-lore við erum að tala um, í sumum þá hamskipta varúlfar bara á fullu tungli og þar sem þetta tungl er ekki fullt þá væri þetta bara venjulegur úlfur) sem ýlfrar á tunglið sem er á hinum endanum 🐺🌙

Hannað og handgert í Englandi - hágæða enskt pjátur(92% tin, 8% kopar og aðrir snefilmálmar)

GOTH AÐ VITA:

Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.

Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið  misjafnt  með póstinum eða Dropp.

Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík. 

Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.

Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum. 

 

 


Deildu þessari vöru