Sanctuary Netasokkabuxur
Finnst þér gaman að ögra? 😈
Sumum þykja venjulegar netasokkabuxur alveg nógu ögrandi en fyrir ykkur sem viljið fara enn lengra erum við hér með netasokkabuxur með krossum ✝️
Svo ef þú vilt gjörsamlega ganga fram af pearl-clutcher crowdinu þá ferðu í þessar og svo í handstöðu upp við næsta vegg (eða frístandandi ef þú er full on gymnist goth) og þá eru allir krossarnir komnir á hvolf 🤘
One size, vel teygjanlegar.
85% polyamide 15% elastane
GOTH AÐ VITA:
Við sendum frítt á næsta pósthús, pakkaport, póstbox eða með Dropp þér þegar verslað er fyrir 14 þúsund eða meira.
Ef verslað er fyrir lægri upphæð er sendingargjaldið misjafnt með póstinum eða Dropp.
Ef þú vilt skila vörunni, þarftu að passa að senda hana í búðina sjálfa en ekki á næsta pósthús. Heimilisfangið er Rokk & Rómantík, Laugavegur 62, 101 Reykjavík.
Ef pöntun berst fyrir klukkan 11:00 fer varan oftast í Dropp samdægurs.
Við sendum einnig með Póstinum og fer hann sótttur hjá okkur á þriðjudögum og fimmtudögum.